Skraddari nokkur, smávaxinn en hugprúður, sat við sauma þegar bóndakona býður honum að kaupa af sér hunang. Skraddarinn smyr nýkeyptu hunanginu á væna brauðsneið og lætur standa á meðan hann klárar verkin. Hunangið laðar til sín flugnager mikið sem skraddarinn fargar með einu slagi. Hreykinn af afreki sínu, saumar skraddarinn linda um mittið á sér með slaogorðinu ‚Sjö í einu höggi‘ og leggur af stað út í hinn stóra heim til að segja frá afreki sínu. Þegar skraddarinn kemur að höll konungsins þykir hermönnum konungs í fyrstu ekki mikið til þessa væskilslega manns koma. Það renna þó á þá tvær grímur þegar þeir sjá að þar fari mögulega stríðsmaður mikill sem slegið hefur sjö í einu höggi.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Medium: Audio Books
Bildformat:
Studio: Saga Egmont
Erscheinungsdatum: