Klukkan 07.45 að morgni miðvikudagsins 19. maí 1999 hófst aðgerðin ‚Hestur‘ með því að Atle Hamre tamningamaður og vagnökumaður var handtekinn.Efnahagsbrotadeild ríkislögreglunnar og fleiri deildir höfðu í nokkrar vikur unnið að rannsókn málsins ásamt lögreglunni í Sandefjord og Larvik en málið var stærsta og umfangsmesta fjárkúgunarmál sem þá hafði verið rannsakað í landinu. Næstu daga þróaðist málið enn frekar og reyndist ekki eiga sér hliðstæðu í Noregi. Að lokum var Atle Hamre dæmdur til þungrar refsingar fyrir að hafa staðið á bak við fjárkúgun upp á 28 milljónir norskra króna.
Medium: Audio Books
Bildformat:
Studio: SAGA Egmont
Erscheinungsdatum: